Hýdrótýrósól - lykilefnið til næringar vefja úr extra virgin ólífuolíu frá Miðjarðarhafslöndum og þekkt innihaldsefni í Celltrex® Ultra Recovery Fluid. Þetta einkaleyfisverndaða, öfluga andoxunarefni og sindurefnaeyðir veitir vörn á frumusviði til að efla og auka fegurð varanna. Einnig hefur verið sýnt fram á að það hægir á öldrunarferlinu með því að styrkja frumuhimnuna.
Dípalmítól hýdroxýprólín (DHPT) - amínósýra sem myndast í líkamanum og er mikilvæg fyrir myndun kollagens. DPHP hjálpar til að styrkja varavefina þannig að rakainnihald eykst og sprungur og þurrkur eru úr sögunni. UV-geislun, streita, mengun og tímaháð öldrun geta valdið öldrun hinna viðkvæmu varavefja, sem getur valdið slappri húð, minnkaðri tónun og festu, myndun hrukkna og töpuðu formi og rakainnihaldi.