Truman Hunt formaður, forstjóri
. Truman Hunt var skipaður formaður Nu Skin Enterprises í janúar 2003 og var ráðinn forstjóri í maí 2003. Fyrirtækið er, undir hans forystu, með starfsemi á 50 markaðssvæðum og hefur nýverið fært út starfsemi sína til Kína, Austur-Evrópu og Suður-Ameríku.
Hunt er einnig virkur í samtökum iðnaðarins og var síðast formaður Alþjóðlegs samband dreifiaðilasamtaka (WFDSA) frá 2005 til 2008. Sem formaður einbeitti hann sér að því að auka áhrif staðbundinna dreifiaðilasamtaka, hlúði að jákvæðu reglugerðarumhverfi, vann að eflingu siðferðis í iðnaðinum og efldi stöðu beinnar dreifingar í lykilumdæmum.
Hann er einbættur í því markmiði fyrirtækisins að vera afl til hins góða í heiminum með því að gera fólki kleift að bæta líf sitt með gefandi viðskiptatækifærum, nýstárlegum vörum og auðgandi, upplífgandi menningu. Hunt situr í ráðgjafanefndum fyrir hönd Nu Skin Force hjá Good Foundation og Nourish the Children verkefninu.
Áður en hann tók við núverandi starfi sínu var Hunt varaforseti og lögmaður Nu Skin Enterprises, frá 1996 til janúar 2003. Hann varð einnig aðstoðarforstjóri Nu Skin Enterprises í janúar 2001 og starfaði sem aðstoðarforstjóri lögfræðideildar frá september 1996 til maí 1998.
Áður en hann hóf störf hjá Nu Skin Enterprises var hann formaður og forstjóri hjá Better Living Products, fyrirtæki tengdu Nu Skin sem starfar í framleiðslu og dreifingu eldhúsvara, sem seldar eru í gegnum hefðbundnar smásöluleiðir. Áður en hann gekk til liðs við Better Living Products árið 1991, var hann verðbréfa- og viðskiptalögfræðingur í einkageiranum. Hunt lauk BS-gráðu frá Brigham Young University og J.D-gráðu frá University of Utah.








