Mikael Linder forstjóri og framkvæmdastjóri yfir Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku
Mikael Linder hóf störf hjá Nu Skin sem framkvæmdarstjóri yfir Norðurlöndunum árið 2001 og tók við sem forstjóri og framkvæmdarstjóri yfir Evrópu í mars árið 2006. Síðan þá hefur markaðssvæðið þanist út og nær nú til Evrópu, Miðausturlanda og Afríku (EMEA) og er nú um það bil 50% af heimsmarkaði Nu Skin í dag. Fyrir þann tíma vann hann sér inn reynslu í ýmsum stjórnunarstöðum hjá Oriflame. Linder hefur meistaragráðu í lögum (LLM), sem hann lauk í Stokkhólmsháskóla.
EMEA-stjórnin


Anna Troffimenkova yfirmaður sölu- og framkvæmdasviðs í Rússlandi
Anna Troffimenkova hóf störf hjá Nu Skin í desember 2005 sem sölustjóri yfir Rússlandi og tók þátt í opnun landsins fyrir Nu Skin. Troffimenkova bjó yfir 12 ára reynslu af sölustörfum þegar hún var hækkuð í núverandi stöðu sína árið 2007. Þar áður starfaði hún við fasteignaviðskipti. Troffimenkova úskrifaðist með gráðu í erlendum málum úr Málvísindaháskóla Moskvu árið 1995 og lauk gráðu í fjármálastjórnun árið 2003.

Diederik Doorenbos aðstoðarforstjóri sölusviðs í Vestur-Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku
Diederik Doorenbos hóf störf hjá Nu Skin í mars 2008 sem sölustjóri yfir Vestur- og Mið-Evrópu. Hann bar ábyrgð á sölu og markaðssetningu í tíu markaðssvæðum í Vestur- og Mið-Evrópu. Í júlí 2009, tók Doorenbos við núverandi stöðu sinni og bætti mörkuðum í Ísrael og Suður-Afríku við dagleg verkefni sín, sem og þjónustu við viðskiptavini í Vestur- og Mið-Evrópu. Doorenbos útskrifaðist úr Erasmus-háskólanum í Hollandi og hefur gráðu í viðskiptahagfræði.

Kata Pál aðstoðarforstjóri sölusviðs yfir Austur-Evrópu.
Kata Pál fékk nýverið stöðuhækkun og er nú aðstoðarforstjóri sölusviðs í Austur-Evrópu. Áður en hún tók við þeirri stöðu, var hún markaðsstjóri viðskipta yfir Evópu, Miðausturlöndum og Afríku (EMEA) í tvö og hálft ár. Hún býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á fyrirtækinu og var ein a fyrstu starfsmönnunum sem voru ráðnir eftir markaðssetningarherferðina í Austur-Evrópu árið 2005. Áður en hún hóf störf hjá Nu Skin var Kata í Háskóla Peter Pazmany, þar sem hún lærði enska og slóvakíska málfræði og bókmenntir.

Michael Lund aðstoðarforstjóri sölusviðs í Norður-Evrópu
Michael Lund hóf störf hjá Nu Skin fljótlega eftir opnun sænsku og dönsku markaðssvæðanna árið 1998. Hann tók þátt í opnun skrifstofunnar í Kaupmannahöfn árið 1999 og aðstoðaði við að koma upp sölu-, dreifingar- og þjónustukerfi á svæðinu. Hann varð aðstoðarframkvæmdarstjóri yfir Norðurlandasvæðinu, með sérstakri áherslu á Bretland, árið 2004 og ári síðar tók hann við núverandi stöðu sinni sem aðstoðarforstjóri sölusviðs í Norður-Evrópu.

Frédéric Devroye er yfirstjórnandi framkvæmdasviðs í Evrópu, Miðausturlöndunum og Afríku
Frédéric Devroye hóf störf hjá Nu Skin árið 2007 sem yfirmaður framkvæmdasviðs í Evrópu. Hann tók við núverandi stöðu sinni í júlí 2009 og sér um öll verkefni tengd vörum Nu Skin Cosmetics og Pharmanex í Evrópu. Devroye lærði markaðsfræði og lauk meistaragráðu í Haute Ecole Groupe ICHEC í Brussel árið 1991. Hann hefur margra ára reynslu af ýmsum stjórnunarstöðum í ólíkum fyrirtækjum, áður en hann hóf störf hjá Nu Skin.

Joris Vanden Berghe fjármálastjóri í Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku
Joris Vanden Berghe hóf störf hjá Nu Skin árið 2005 sem fjármálastjóri yfir Evrópu, Miðausturlöndunum og Afríku. Áður en hann hóf störf hjá Nu Skin var hann starfandi meðeigandi endurskoðunarfyrirtækis í átta ár og var einnig prófessor í háskóla í sex ár þar sem hann kenndi bókfærslu, tölfræði og hagmælingar. Hann úskrifaðist með gráðu í viðskiptaverkfræði úr Kaþólska háskólanum í Brussel árið 1994.



