Nu Skin Force for Good dagurinn
Í júnímánuði á hverju ári taka Nu Skin starfsmenn á EMEA svæðinu sig saman og starfa að velferðarmálum. Þessi Force for Good góðgerðardagur veitir frábært tækifæri til að sýna að okkur stendur ekki á saman - og að við er tilbúin til að taka til hendinni þar sem okkar er þörf.
Belgía
Starfsmenn Nu Skin í Belgíu og í höfuðstöðvum Nu Skin EMEA tóku sig saman við að styrkja þrjár barnamiðstöðvar á svæðinu. Í Clair Matin, barnaheimili sem staðsett er í Brussel og rekið er af Hjálpræðishernum, eyddu starfsmenn einum degi í almenna viðhaldsvinnu, þar sem þeir m.a. hreinsuðu til, máluðu og unnu í garðinum. Aðrir starfsmenn hjálpuðu til í Fabota, sem er gæslustaður og sumardvalarstaður, þar sem þeir snæddu hádegismat með börnunum og eyddu síðan deginum með þeim við leik og störf. Tveimur dögum síðar, komu aðrir starfsmenn til Fabota til að hjálpa til við að sjá um viðhald á húsunum og umhverfinu. Að lokum máluðu starfsmennirnir kennslustofu fimmta bekkjar í Sint-Jan leik- og grunnskólanum í Leuven.
Danmörk
Nu Skin í Danmörku bauð 15 unglingsstúlkum frá Børnehjælpsdagen, sem eru hjálparsamtök fyrir börn og styður um 15.000 börn í Danmörku sem hafa verið tekin úr umsjá foreldra sinna. Um morguninn fóru stúlkurnar í útlitshönnun og slökunarmeðferð en eftir það tók við hádegismatur og leikir. Þökk sé starfsfólki Nu Skin fengu stúlkurnar einnig að taka með sér Nu Skin vörur heim til sín.
Þýskaland
Eins og á síðasta ári studdi þýski hópurinn á bak við samtökin ‘Hilfe für krebskranke Kinder Frankfurt e.V’, sem eru samtök sem stofnuð voru árið 1983 og sem er ætlað að styðja krabbameinsjúk börn og foreldra þeirra. Með aðstoð dreifingaraðila á staðnum var skipulagður viðburður í þýsku Nu Skin miðstöðinni en þar var m.a. haldin hlutavelta þar sem fjöldi fallegra hluta var í vinning. Þar að auki veittu dreifingaraðilarnir fjárframlög til samtakanna.
Ungverjaland
Nu Skin í Ungverjalandi hefur sýnt að þeim standi ekki á sama þegar þeir studdu skóla fyrir fátæk börn í Szigetvár í Baranya héraðinu, en börnin þar eiga öll við margvísleg vandamál að stríða sökum þess að vera alin upp hjá einstæðu foreldri eða koma af heimilum þar sem foreldrar eru atvinnulausir. Nu Skin hópurinn á staðnum stóð fyrir skemmtilegri helgi við Balaton-vatn, en á þeim stað fór einnig fram ageLOC Vitality íþróttaviðburður. Krakkarnir eyddu frábærri helgi við ströndina þar sem þau fengu að synda, leika sér og margt fleira. Þar að auki fengu þau Jungamals vítamín fæðubótarefni og fengu að vita hvernig VitaMeals máltíðir hjálpa börnum um allan heim.
Ísrael
Á síðasta ári aðstoðaði Nu Skin Ísrael við að endurbæta Ofer dvalarmiðstöð í nágreni við Haifa, þar sem börn sem búa við hættulegar aðstæður geta dvalið ásamt fjölskyldum sínum. Á þessu ári fór hópurinn aftur í miðstöðina til að veita börnunum og mæðrum þeirra gleðiríkan dag með dekri og leikjum. Á meðan börnin tóku þátt í uppákomum og leikum þar sem fjöldi verðlauna var í boði, fengu mæðurnar slakandi andlitsmeðferð.
Holland
Í Hollandi studdi Nu Skin hópurinn á bak við Stichting Deal, sem eru samtök sem styður á bak við fólk sem á við andlegar takmarkanir að stríða. Á Force for Good deginum fóru starfsmenn Nu Skin með börn frá samtökunum í dýragarðinn og gerðu sér glaðan dag með þeim.
Suður-Afríka
Nu Skin í Suður-Afríku aðstoðaði stofnun sem styður við hverfisskóla í afskektum héruðum landsins. Starfsmennirnir eyddu einum degi í að heimsækja skólana - leika sér með börnunum, hjálpa þar sem þeirra var þörf og gefa VitaMeals máltíðir og kennslubúnað.



