Lögfræðilegt
Einkahagsstefna
A. Yfirlit
Nu Skin, tengdum fyrirtækum og útibúum ("Nu Skin") eru ljósar og þau skilja áhyggjur þínar af því hvernig upplýsinga um þig er aflað, þær nýttar og þeim dreift þegar þú ferð inn á nuskin.com ("Vefsíðuna"). Nu Skin skuldbindur sig til að vernda einkalhagi neytenda varnings og þjónustu Nu Skin. Hér er lýst hvernig einkahagsstefnan tengist vefsíðu okkar ("Einkahagsstefnan"). Þótt fjallað sé nánar um einkahagsstefnuna hér á eftir er rétt að vekja athygli á:
1. Þær einkaupplýsingar sem þekkja má og þú lætur í té eru álitnar trúnaðarmál og nema, eins og útskýrt er í málgrein C hér að neðan, eru slíkar upplýsingar ekki látnar öðrum í té.
2. Nu Skin beitir Verisign-tækninni en sönnun þess er öryggisinnsigli Verisign á vefsíðunni. Í þessu felst að allar upplýsingar sendar á vefsíðuna, ef þær berast í öryggishólkslagi (Secure Sockets Layer "SSL") til Nu Skin, eru á dulmáli og vernda slíkar upplýsingar gagnvart þriðja aðila eins og útskýrt er nánar í málsgrein E hér að neðan.
Veitið því vinsamlegast athygli að stefna þessi á einungis við um vefsíðu Nu Skin en ekki um vefsíður annarra fyrirtækja eða stofnana sem Nu Skin kann að veita tengingar við eins og nánar er útskýrt í málsgrein H. Með heimsókn, aðgengi, eða notkun á vefsíðunni er verið að samþykkja þær starfsvenjur sem lýst er í einkahagsstefnunni.
B. Uppsöfnun upplýsinga
Upplýsinga sem aflað er með beintengingu má vísa til, ýmist nafnlaust eða sem þekkjanlegum. Nafnlausar upplýsingar vísa til upplýsinga af vefsíðu og ekki er hægt að rekja til tiltekins einstaklings, þ.e. heildarfjöldi heimsókna á vefsíðu okkar ("Almennar upplýsingar"). Upplýsingar sem eru þekkjanlegar vísa til tiltekinna upplýsinga um viðskiptavini, þ.e. nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer og upplýsingar um greiðslukort. ("Persónulegar upplýsingar"). Veitið því vinsamlegast athygli að þú ræður hvort þú deilir upplýsingum um einkahagi á vefsíðunni. Því aðeins skal íhugað að deila upplýsingum um einkahagi með Nu Skin að fallist sé á einkahagsstefnu okkar.
1. Almennar upplýsingar
Nu Skin má afla tiltekinna, almennra upplýsinga sjálfkrafa, þ.m.t. "venjulegra vefupplýsinga" frá öllum sem heimsækja vefsíðuna. Slík gögn má einungis nota í heild. Almennar upplýsingar aðstoða Nu Skin við að ákvarða almenna notkunarhætti og við að breyta vefsíðunni þér til hagsbóta. Slíkum almennum upplýsingum má deila með þriðja aðila hvenær sem vera skal.
Nu Skin er heimilt öðru hvoru að beita tækni sem kölluð er "vafrakökur eða cookies" en hún segir Nu Skin hvernig og hvenær vefsíða okkar er heimsótt og af hve mörgum. Vafrakökur Nu Skin safna ekki upplýsingum um einkahagi og við tengjum ekki upplýsingar sem aflað er með vafrakökum við aðrar upplýsingar um einkahagi til að segja okkar hver þú ert eða jafnvel netfang þitt. Okkur er einnig heimilt að sjá tengdum aðilum fyrir tölfræði almennra upplýsinga um notkun viðskiptavina á vefsíðu okkar. Á vefsíðunni kann að vera efni frá öðrum aðilum sem geta beitt öðrum aðferðum við að rekja slóðir en hér er lýst. Einkum kunna sumir smásalar þriðja aðila að nota "vafrakökur" á annan hátt en við.
2. Upplýsingar um einkahagi
Endrum og sinnum má vera að Nu Skin fari sérstaklega fram á upplýsingar um þig þegar þú skráir þig fyrir þjónustu eða pantar vöru. Nu Skin gæti þurft tilteknar upplýsingar um einkahagi - eins og nafn, netfang, hvert senda skuli reikninga, tölvutegund eða greiðslukortsnúmer - til að geta séð þér fyrir umbeðinni þjónustu eða vöru. Við gætum einnig notað upplýsingar um einkahagi til að láta þig vita af viðbótarvörum eða þjónustu sem þú kynnir að hafa áhuga á, nema þú viljir ekki fá slíkar upplýsingar.
C. Notkun og uppljóstrun upplýsinga
1. Hvernig Nu Skin notar upplýsingar
Þú viðurkennir og fellst á að Nu Skin hafi rétt á að nota upplýsingar um einkahagi og almennar upplýsingar eða allar aðrar upplýsingar (í heild "upplýsingar") sem Nu Skin safnar frá þér og um þig af vefsíðu sinni. Nema annað komi hér fram og Nu Skin hafi ekki samþykki þitt eða þurfi (eða leyfist) lögum samkvæmt, mun Nu Skin ekki deila upplýsingum um þig með neinum ótengdum aðila.
2. Hverjum Nu Skin lætur upplýsingar um þig í té
Þrátt fyrir ofanritað má Nu Skin láta upplýsingar í té til (i) aðila tengdum Nu Skin; (ii) þriðja aðila í því tilviki að Nu Skin allar eða hluta eigna sinna til slíks þriðja aðila eða sameinist eða sé yfirtekinn af þriðja aðila; eða (iii) smásala þriðja aðila ef nauðsynlegt er að sjá þér fyrir vöru eða þjónustu sem þú hefur beðið um; eða (iv)þriðja aðila sem sér Nu Skin fyrir ýmiss konar þjónustu og þarf að styðja ásetning þessar einkahagsstefnu. Nu Skin má einnig láta upplýsingar um þig í té við aðra ef við erum í góðri trú um að slíkt þurfi að gera lögum samkvæmt eða samkvæmt lagaferli, til að bergðast við kröfum, eða vernda réttindi, eignir eða öryggi Nu Skin eða annarra.
D. Börn
Nu Skin selur börnum ekki vörur eða þjónustu. Við seljum fullorðnum vörur handa börnum. Sértu yngri en 18 ára máttu aðeins nota vefsíðuna með aðild foreldris eða fjárhaldsmanns. Sem viðbrögð við áhyggjum um vernd einkahags barna á netinu setti Alríkisþingið lög um vernd einkahags barna á netinu 1998. ("LVBN"). Í löggjöfinni eru reglur og ferlar sem stýra því hvernig vefsíður mega safna, nota og láta í té upplýsingar um einkahagi barna undir 13 ára aldri. Af þessum sökum, í samræmi við þessa einkahagsstefnu og reglugerðir LVBN lætur Nu Skin ógert:
(1) Að fara fram á eða safna vitandi vits upplýsingum um einkahagi einstaklinga undir 13 ára að aldri ("Barna");
(2) Að nota vitandi vits eða deila upplýsingum um einkahagi einstaklinga undir 13 ára að aldri með þriðja aðila;
(3) Að gefa börnum kost á að dreifa opinberlega eða á annan hátt upplýsingum um einkahagi; og
(4) Að tæla börn með væntingum um tiltekinn leik, verðlaun eða aðrar athafnir til láta upplýsingar um einkahagi í té.
Nu Skin safnar ekki vitandi vits upplýsingum um börn og telur að þau eigi að fá samþykki foreldra sinna áður en nokkrar þekkjanlegar upplýsingar eru látnar í té. Við hvetjum þig til að taka þátt í reynslu barnsins þíns á Netinu og fara yfir áríðandi öryggisþætti með hverju barni áður en það kannar Netið.
E. Öryggisferli
Nu Skin rekur öruggt gagnanet sem varið er af stöðluðum iðnaðareldveggjum og öryggiskerfum aðgangsorða. Nu Skin notar einnig öryggishólkslags (Secure Sockets Layer "SSL")hugbúnað til að vernda upplýsingar um þig í sendingum. Einungis fullgiltir einstaklingar frá Nu Skin sem verða að fá aðgang að téðum upplýsingum til að sjá þér fyrir vörum og þjónustu mega fá aðgangi að upplýsingunum um einkahagi. Nu Skin hefur ekki frammi neinar staðhæfingar eða ábyrgðir um hvort þessar öryggisráðstafanir nægi. Nu Skin skal ekki bera ábyrgð neinum raunhæfum eða afleiddum skaða sem stafar af mistökum í meðhöndlun þessarar einkahagsstefnu og stafar af öryggisbroti eða bilun tæknibúnaðar. Áríðandi er að þú gætir notandanafns og aðgangsorðs og greinir öðrum ekki frá þeim. Tilteknar upplýsingar kunna að vera sendar til þín í tölvupósti. Þótt ólögmætt sé að stöðva eða greina frá þessum skilaboðum samkvæmt alríkislögum eru slíkar sendingar ekki öruggar.
F. Viðeigandi lög/alþjóðleg málefni
Sökum þess að Nu Skin hefur heitið að vernda einkahagi þína verður upplýsingum sem sendar eru á þessa vefsíðu safnað, þær unnar, geymdar, látnar í té og eytt í samræmi við viðeigandi bandarísk lög. Sértu ekki bandarískur notandi skaltu viðurkenna og fallast á að við megum safna og nota einkagögn þín og greina öðrum aðilum frá innihaldi þeirra eins og fjallað er um í "Hverjum Nu Skin lætur upplýsingar um þig í té" hér að framan, utan lögsögu dvalarstaðar þíns. Þar að auki kunna slíkar upplýsingar að vera geymdar á netþjónum sem staðsettir eru utan lögsögu dvalarstaðar þíns. Óvíst er hvort bandarísk löggjöf sér fyrir þeirri upplýsingavernd sem möguleg er í öðrum löndum. Með því að láta okkur í té upplýsingar um þig hefurðu viðurkennt að hafa lesið stefnu þessa, fallist á skilmála hennar og samþykkt flutning slíkra upplýsinga út fyrir lögsögu dvalarstaðar þíns. Gangirðu ekki að skilmálum þessarar stefnu skaltu ekki nota þessa vefsíðu.
G. Hvernig uppfæra eða eyða á upplýsingum þínum
Nu Skin veitir þér tækifæri til að yfirfara upplýsingarnar um einkahagi á vefnum í tengslum við óskir fjárfesta um upplýsingar. Til þess skal hringt í Tengsladeild við fjárfesta í síma (801) 345-6003.
H. Tengdar vefsíður á Netinu
Á vefsíðunni er séð fyrir stikluleggjum sem eru auðkennd orð eða myndir í stiklutextaskjalinu sem þegar smellt er á hann flytur þig á annan stað í skjalinu, í allt annað skjal eða á aðra vefsíðu sem er ekki stýrt af Nu Skin. Á þessum stiklutengdu vefsíðum kunna að vera einkahagsákvæði sem eru ólík þeim sem hér er séð fyrir. Nu Skin ber ekki ábyrgð á söfnuninni, notkun eða uppljóstrun upplýsinga sem safnað er af vefsíðum eða tenglum og Nu Skin afneitar algerlega allri ábyrgð sem tengist slíkri söfnun, notkun eða uppljóstrun.
I. Breytingar á einkahagsstefnu Nu Skin
Ákveði Nu Skin að breyta einkahagsstefnunni verður það tilkynnt hér svo þú vitir alltaf hvaða upplýsingum er safnað og hvernig við gætum notað eða ljóstrað þeim upplýsingum upp. Allar breytingar á þessari einkahagsstefnu eru taldar taka gildi jafnskjótt og breytingarnar eru tilkynntar á vefsíðunni. Einkahagsstefnan var síðast endurskoðuð 20. janúar 2003.
J. Hvernig hafa skal samband við Nu Skin
Viljirðu spyrja einhvers um þessa einkahagsstefnu skaltu senda tölvupóst til privacy@nuskin.com.
Notandasamningur um vefsíðu Nu Skin
Notandasamkomulag um vefsíðu Nu Skin
1. Samþykki skilmála
Nu Skin, deild í Nu Skin International, (“Nu Skin” eða “við”, okkur”, “okkar”)sér um aðgengi að vefsíðu Nu Skin en hún er á www.nuskin.com (“vefsíðan”) og er háð því hvort þú fellst á þennan Notandasamning um vefsíðu Nu Skin (“Samkomulagið”). Nu Skin gæti uppfært samning þennan öðru hverju án þess að tilkynna þér það fyrirfram. Við hvetjum þig til að yfirfara samning þennan reglulega til að sjá uppfærslur eða breytingar.
Með aðgengi, vafri, mótun og/eða tengingu við vefsíðuna verðurðu notandi (skilgreint hér í 2 kafla) og fellst á að verða bundinn af skilmálum þessa samnings. Samningur þessi var síðast endurskoðaður 27. janúar 2004. Þegar notaðir eru tilteknir eiginleikar vefsíðunnar gætirðu einnig orðið háður tilkynntum viðmiðum, reglum, þjónustuskilmálum, viðunandi notkunarstefnum, einkahagsstefnum eða öðrum þekktum samningsákvæðum. Komi til ágreinings milli annars samnings, regla, stefna eða þjónustuskilmála og þessa samnings skulu ákvæði samnings þessa gilda. Viljirðu spyrja einhvers um þetta notandasamkomulag skaltu hafa samband bið Nu Skin með tölvupósti til Irbianuc@nuskin.com áður en vefsíðan er notuð.
2. Tegundir notenda
Hver sá sem notar aðgengi, rápar eða notar vefsíðuna á annan hátt, hvort sem er með handafli eða með sjálfvirkum búnaði eða forriti skal teljast vera “Notandi” samkvæmt samningi þessum.
3. Einkahagur
Þú fellst á að hafa lesið og skilið skilmála einkahagsstefnu Nu Skin en aðgangi að henni má fá á http://www.nuskin.com/nuskin/en_US/corporate/legal.html og er sameinað með tilvísun til samnings þessa eins og hér kemur fram.
4. Not á vefsíðunni
Þú skilur að Nu Skin getur ekki, ábyrgist ekki eða getur axlað ábyrgð á að lausar skrár til niðurflutnings af vefsíðunni séu lausar við sýkingu eða veirur, orma, Trójuhesta, tímasprengjur, ógildingarhnappa eða aðra tölvuforritshluta sem ætlað er að skaða, trufla, stöðva laumulega eða yfirtaka kerfi, gögn eða persónulegar upplýsingar. Þú berð ábyrgð á að setja upp fullnægjandi ferla og skoðunarstöðvar til að uppfylla sérþarfir þínar um nákvæmni ílags- og frálagsgagna og að viðhalda búnaði utan við vefsíðuna til að geta endurunnið glötuð gögn.
5. Óskaddað kerfi
Ekki má nota nokkur tæki, hugbúnað eða venjur til að trufla reglulega starfssemi vefsíðunnar. Ekki má gera neitt sem leggur ósanngjarna byrði á grunngerðina sem notuð er til að styðja við skilvirkan rekstur vefsíðunnar, þ.m.t. en ekki takmarkað við óumbeðinn tölvupóst (þ.e. "Spam").
6. ÁHÆTTA, NETNOTKUN
ÞÚ AXLAR FULLA ÁBYRGÐ OG ÁHÆTTU VIÐ NOTKUN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNNI OG NETINU. ÞÚ VIÐURKENNIR OG FELLST Á AÐ ALLIR UPPFLUTNINGAR EÐA SENDINGAR FRÁ ÞÉR KUNNA AÐ VERA STÖÐVAÐAR OG NOTAÐAR Í HEIMILDARLEYSI AF ÞRIÐJA AÐILA OG AÐ ÖLL ÁHÆTTA ÞESSU TENGD ER ÞÍN AÐ ÖLLU LEYTI.
7. ENGAR ÁBYRGÐIR
NU SKIN VEITIR ENGAR ÁBYRGÐIR NÉ GEFUR ÞÆR Í SKYN OG GEFUR ENGAR YFIRLÝSINGAR EÐA MEÐMÆLI AF NEINU TAGI (Þ.M.T. EN EKKI TAKMARKAÐ VIÐ ÁBYRGÐ Á HEITI EÐA LÖGBROTI EÐA AÐ ÁBYRGÐ SÉ GEFIN Í SKYN Á SÖLUHÆFNI EÐA HÆFNI TIL TILTEKINS MARKMIÐS) HVAÐ VARÐAR VEFSÍÐUNA, EFNI HENNAR, NOKKURN VARNING EÐA ÞJÓNUSTA SEM LÁTIN ER Í TÉ UM VEFSÍÐUNA EÐA ALMENNT Á NETINU, NEMA ÞESS SÉ SÉRSTAKLEGA GETIÐ Á VEFSÍÐUNNI UM TILTEKNA VÖRU EÐA ÞJÓNUSTU OG NU SKIN SKAL EKKI BERA ÁBYRGÐ Á NEINUM KOSTNAÐI EÐA SKAÐA SEM STAFAR ANNAÐHVORT BEINT EÐA ÓBEINT AF NEINUM VIÐSKIPTUM SEM GERÐ VORU FYRIR TILSTUÐLAN VEFSÍÐUNNAR. SUM RÍKI LEYFA EKKI RIFTUNARÁKVÆÐI ÁBYRGÐA SEM GEFIN ER Í SKYN SVO RIFTUNARÁKVÆÐIÐ HÉR AÐ OFAN ÞARF EKKI AÐ EIGA VIÐ UM ÞIG. NU SKIN ÁBYRGIST EKKI AÐ VEFSÍÐAN EÐA ÞJÓNUSTAN FULLNÆGI KRÖFUM NOTANDANS EÐA AÐ VEFSÍÐAN EÐA ÞJÓNUSTAN VERÐI HNÖKRALAUS EÐA VILLULAUS EÐA AÐ BÆTT VERÐI ÚR GÖLLUM Á VEFSÍÐUNNI. VEFSÍÐAN OG INNIHALDIÐ OG ÞJÓNUSTAN SEM BOÐIN ER Á VEFSÍÐUNNI ER SÉÐ FYRIR Á GRUNDVELLI "EINS ER" OG "EINS OG TIL ER".
8. Kerfið sambandslaust
Öðru hvoru gerir Nu Skin ráð fyrir lokun kerfisins vegna viðhalds og í öðru skyni. Óráðgert sambandsleysi kerfisins kann einnig að gerast. Nu Skin skal enga ábyrgð bera á því að ekki er unnt að ná til vefsíðunnar eða á tapi gagna eða færslum sem stafa af ráðgerðum eða óráðgerðum sambandsleysi kerfisins eða á töfum af þeim sökum, rangri afhendingu, því að upplýsingar berast ekki vegna sambandsleysis kerfisins eða nokkurra athafna þriðja aðila eða á öðru sambandsleysi við hýsivefinn eða á grunngerð Netsins og á kerfum utan vefsíðunnar.
9. Bætur
Þú fellst á að bæta, verja og að álíta Nu Skin og móðurfyrirtæki þess, tengd fyrirtæki, útibú, stjórnendur, stjórnarmenn, starfsmenn og fulltrúa lausa undan og við allar kröfur, innheimtur, málaferli, kostnað, ábyrgð, tjón og skaða af öllu tagi (þ.m.t. þóknanir til lögmanna) sem stafa af (i) notkun þinni, illri meðferð eða misnotkun á vefsíðunni, (ii) notkun þinni eða kaupum á þjónustu eða vörum af vefsíðunni, eða (iii) brotum þínum á ákvæðum samnings þessa. Þú munt sýna eins mikinn samstarfsvilja og hægt er með sanngirni að krefjast í vörn Nu Skin gegn nokkurri kröfu. Nu Skin áskilur sér rétt, á eigin kostnað, að axla alla vörn og stjórn allra mála sem annars væri talið að þér bæri að bæta og þú skalt ekki semja um nein mál án skriflegs samþykkis Nu Skin.
10. Huglæg eign
Efni vefsíðunnar, eins og texti, grafík, merki, hljóðupptökur, myndbönd, ljósmyndir, hugbúnaður og aðrar upplýsingar (“efnið”) er eign Nu Skin og/eða tengdra fyrirtækja eða meðeigenda og nýtur verndar alríkis- og alþjóðlegs höfundarréttar og laga um vörumerki, eða annarra eignaréttinda. Þessi réttindi eru vernduð á allan hátt, gagnvart fjölmiðlum og tæknibúnaði sem nú er fyrir hendi eða þróast síðar. Þú mátt prenta og sækja hluta af efni af ýmsum svæðum vefsíðunnar en eingöngu í þína eigin þágu til notkunar í stofnun þinni eða eins og heimilt er á annan hátt. Engan hluta efnisins má prenta eða gefa út á ný, breyta eða dreifa á nokkurn hátt án skýrrar heimildar Nu Skin. Þér er óheimilt, og samningur þessi heimilar þér ekki að endurgera, snúa við, spilla, taka í sundur, breyta, breiða út, selja, dreifa, leyfa eða mynda afleidd gangverk við vefsíðuna. Tiltekið efni má fá með leyfi þriðju aðilum og skal allt efni frá þeim og öll huglæg eignarréttindi sem tengjast efni frá þessum þriðju aðilum. Þú mátt ekki fjarlægja, breyta eða draga úr hvers konar höfundarrétti, vörumerkjum eða öðrum huglægum eignum eða tilkynningu um eign eða myndskýringu á vefsíðunni eða í efninu. Nu Skin áskilur sér hvers konar réttindi sem ekki eru beinlínis veitt með samningi þessum eða nokkrum viðeigandi leyfissamningum lokanotanda.
Ekkert sem hér kemur fram skal skoðast sem hafa verið gefið í skyn, afneitað eða heimiluð réttindi samkvæmt nokkru einkaleyfi eða vörumerki Nu Skin eða nokkurs þriðja aðila. Nema beinlínis sé tekið fram hér að ofan skal ekkert efni hér skoðast sem nokkurt leyfi eða réttindi hafi verið veitt á höfundarrétti Nu Skin.
11. Takmörk ábyrgðar
UNDIR ENGUM KRINGUMSTÆÐUM SKAL NU SKIN EÐA NOKKUR ANNAR AÐILI SEM FÆST VIÐ AÐ SKAPA, FRAMLEIÐA EÐA DREIFA VEFSÍÐUNNI BERA NEINA BEINA, TILFALLANDI, SÉRSTAKA EÐA AFLEIDDA ÁBYRGÐ Á BÓTUM Á HAGNAÐARTAPI, VIÐSKIPTAVILD, NOTKUN GAGNA EÐA ÖÐRU ÓÁÞREIFANLEGUM TJÓNUM (JAFNVEL ÞÓTT OKKUR HAFI VERIÐ GERT VIÐVART UM MÖGULEIKA Á SLÍKUM BÓTUM) SEM STAFA AF (I) NOTKUN EÐA VANHÆFNI TIL AÐ NOTA VEFSÍÐUNA, (II) KOSTNAÐI VIÐ AÐ AFLA FORFALLAVARNINGS EÐA ÞJÓNUSTU SEM STAFAR AF HVERS KONAR VARNINGI, GÖGNUM, EFNI EÐA ÞJÓNUSTU SEM KEYPT ER EÐA AFLAÐ EÐA FÆRSLNA UM VEFSÍÐUNA, (III) HEIMILDARLAUSU AÐGENGI AÐ EÐA MEÐ BREYTINGU Á SENDINGUM EÐA GÖGNUM ÞÍNUM, (IV) YFIRLÝSINGAR EÐA HÁTTSEMI ÞRIÐJA AÐILA Á VEFSÍÐUNNI, EÐA (V) NOKKURS ANNARS ATRIÐIS SEM TENGIST VEFSÍÐUNNI. ÞÚ VIÐURKENNIR HÉR MEÐ AÐ ÞESSI MÁLSGREIN SKAL EIGA VIÐ UM ALLT EFNI, VARNING OG ÞJÓNUSTU SEM FÁANLEG ER Á VEFSÍÐUNNI Á HVERJU SEM DYNUR SKAL SAMANLÖGÐ ÁBYRGÐ NU SKIN SAMKVÆMT SKILMÁLUM ÞESSUM EIGA VIÐ UM HÆRRI FJÁRHÆÐ EN ÞÁ LÆGRI EN NOKKUR ÞÓKNUN SEM GREIDD ER, EF NOKKUR, TIL NU SKIN FYRIR NOTKUN ÞÍNA Á VEFSÍÐUNNI EÐA $ 50. SÖKUM ÞESS AÐ Í SUMUM RÍKJUM MÁ VERA AÐ EKKI SÉ LEYFT AÐ TAKMARKA ÁBYRGÐ Á AFLEIDDUM EÐA TILFALLANDI SKAÐA, Í SLÍKUM RÍKJUM TAKMARKAST ÁBYRGÐIN VIÐ MINNSTU FJÁRHÆÐ SEM LÖG LEYFA. TAKMARKANIR Á ÁBYRGÐ SEM SÉÐ ER FYRIR Í SAMNINGI ÞESSUM GILDIR TIL HAGSBÓTA FYRIR NU SKIN MÓÐURFÉLAGI OKKAR, TENGD FYRIRTÆKI, ÚTIBÚ OG UM ALLA STJÓRNENDUR OKKAR, STJÓRNARMENN, STARFSMENN, LÖGMENN OG FULLTRÚA.
12. Skyldur við reikning þinn
Með tilliti til notkunar þinnar á vefsíðunni fellstu á: (i) að leggja fram sanna, nákvæma, nýjar og tæmandi upplýsingar um þig sjálfan eða stofnun þína eins og mælst er til á vefsíðunni (“Skráningarupplýsingarnar”); og (ii)viðhalda og uppfæra skráningarupplýsingarnar til að þær séu réttar, nákvæmar, nýlegar og tæmandi. Látirðu rangar, ónákvæmar, ekki nýlegar eða ófullnægjandi upplýsingar í té eða að við höfum gilda ástæðu til að gruna að þessar upplýsingar séu rangar, ónákvæmar eða ófullnægjandi, getum við stöðvað eða lokað reikningi þínum og neitað að heimila frekari notkun vefsíðunnar og aðgengi að vefsíðunni í framtíðinni. Þú berð ábyrgð á að gæta trúnaðar um aðgangsorð þitt og reikningsnúmer og berð ábyrgð á öllum athöfnum sem eiga sér stað í tengslum við reikningsnúmer þitt og aðgangsorð. Þú fellst á að nota megi aðgangsorð þitt til að rekja megi rafeindaskrá og rafeindaundirskrift til þín. Af þessum sökum skaltu ekki ljóstra upp aðgangsorði þínu eða reikningsauðkenni til þriðja aðila. Þú fellst á að gera okkar umsvifalaust viðvart um hvers konar heimildarlausa notkun á aðgangsorði þínu eða öðrum öryggisbrotum. Nu Skin skal ekki á nokkurn hátt ábyrgjast eða bera ábyrgð á sviksamlegum kaupum sem gerð eru með því að nota uppljóstrað aðgangsorð þitt.
13. Vöruverð
Í því tilviki að vara sé sett á lista með röngu verði eða með röngum upplýsingum vegna misritunar eða villu í verði í upplýsingum um vöruna skal Nu Skin hafa rétt til að hafna eða ógilda pantanir á vörum sem eru með röngu verði á listanum. Nu Skin skal hafa rétt á að hafna eða ógilda allar slíkar pantanir hvort heldur pöntun hefur verið staðfest og greiðslukort notandans skuldfært. Hafi kaup verið færð á greiðslukort þitt og pöntun þín ógilt skal Nu Skin umsvifalaust færa upphæðina til tekna á greiðslukorti þínu.
14. Enginn stuðningur við efni og tengingar til annarra vefsíðna
Séð er fyrir tengingum til annarra vefsíðna eingöngu til þæginda fyrir notendur þessarar vefsíðu. Á þessari vefsíðu er séð fyrir tengingum eða vísunum til annarra vefsíðna en Nu Skin hefur ekki yfirfarið allar þessar vefsíður og ber enga ábyrgð á efni slíkra vefsíðna og skal ekki bera ábyrgð á skaða eða sárum sem rekja má til slíks efnis. Nu Skin styður hvorki né heldur uppi kynningum á slíkum vefsíðum eða neinar upplýsingar eða aðrar vörur eða efni sem þar er að finna eða nokkurn árangur sem ná má með því að nota þær. Afráðir þú að fá aðgengi að einhverri þeirra vefsíðna sem tengdar eru þessari vefsíðu gerirðu það á þína áhættu.
15. Tenging og rammi vefsíðunnar
Nema að notandinn hafi gildandi, skriflegan samning við Nu Skin þar sem annað er tekið fram má notandinn aðeins sjá fyrir stiklulegg við vefsíðuna á aðra vefsíðu ef notandinn fylgir eftirfarandi í einu og öllu: (a) tengingin má aðeins vera fyrir texta og vera greinilega merkt "Nu Skin” eða tengingin verður að "benda" á vefslóðina http://www.nuskin.com” og ekki til annarra blaðsíðna á vefsíðunni; (c) þegar tengingin er ræst af notanda skal hún sýna allan skjáinn og ekki vera í "ramma" á hinni tengdu vefsíðu; og (d) útlit, staðsetning og aðrir þættir tengingarinnar mega ekki vera þannig að þeir skaði eða deyfi þá viðskiptavild sem tengd er nafni Nu Skin og vörumerki eða mynda rangt útlit sem tengist Nu Skin eða fyrirtækið styrkir á tengdu vefsíðunni. Með því að fallast á þetta er Nu Skin ekki að afsala sér eignarétti sínum eða rétti til vörumerkja, höfundarréttar eða öðrum gerðum á huglægri eign tengdri vefsíðunni. Nu Skin áskilur sér rétt til að rifta samþykki sínu til hvaða tengingar sem vera skal hvenær sem það óskar.
16. Gildandi lög
Samningur þessi og aðgengi að vefsíðunni skal lúta og vera túlkaður eftir lögum Utah-ríkis, að frátöldum vali á lagareglum og málum sem snerta höfundarréttindi, vörumerki og einkaleyfi en þau fara að alríkislögum Bandaríkjanna.
17. Val vettvangs
Þú fellst hér með óafturkallanlega og skilyrðislaust á að lúta lögsögu dómstóla Utah-ríkis og Bandaríkja Ameríku, staðsettum í Utah um hvers konar málaferla sem rísa út af eða tengjast notkun vefsíðunnar eða vegna kaupa á þjónustu sem gerð eru á vefsíðunni (og samþykkir að hefja nein málaferli sem þessu tengjast nema fyrir slíkum dómtólum). Hér með afsalar þú óafturkallanlega og skilyrðislaust öllum andmælum við vali á varnarþingi fyrir slík málaferli í dómstólum Utah-ríkis og fellst á að bera ekki við eða andmæla fyrir neinum dómstóli í Utah-ríki við að slíkur málarekstur sé hafinn á óþægilegum vettvangi.
18. Alþjóðlegir notendur
Nu Skin heimtar ekki að efnið eigi við eða það sé niðurflutt utan Bandaríkjanna. Aðgengi að efninu kann að vera ólögmætt í vissum löndum eða fyrir vissa einstaklinga. Notirðu aðgengi að vefsíðunni utan Bandaríkjanna gerirðu það á þina áhættu og berð ábyrgð á að farið sé að lögum í þinni lögsögu þrátt fyrir kafla 16 og 17 hér að framan.
19. Svörun notanda
Skyldi einhver notandi bregðast við Nu Skin með upplýsingum, þ.m.t. svörun, eins og spurningum, beiðnum, umsögnum, uppástungum, eða í tengslum við efni skjala Nu Skin á vefsíðunni, eða um þjónustu Nu Skin þá skulu slíkar upplýsingar ekki vera háðar trúnaði og Nu Skin skal ekki hafa neinar skyldur varðandi slíkar upplýsingar og skal vera heimilt að fjölfalda, nota, ljóstra upp og dreifa upplýsingum til annarra´takmarkalaust. Nu Skin skal vera frjálst að nota allar hugmyndir, hugtök, þekkingu eða tækni sem falin er í slíkum upplýsingum í hvaða tilgangi sem vera skal, þ.m.t. en takmarkist ekki við þróun, framleiðslu og markaðssetningu vara með slíkum upplýsingum.
20. Viðunandi og lögmæt notkun vefsíðunnar
Allar upplýsingar látnar Nu Skin í té í sambandi við notkun vefsíðunnar skulu: a) ekki vera rangar, ónákvæmar eða misvísandi; (b) skulu ekki vera klúrar eða klámfengnar; (c)´þær skulu vera lausar við veirur, Trójuhesta, orma, tímasprengjur, ógildingarhnappa eða aðra tölvuforritshluta sem ætlað er að skaða, trufla, stöðva laumulega eða yfirtaka kerfi, gögn eða persónulegar upplýsingar; (d) skulu ekki brjóta á höfundarrétti þriðja aðila, einkaleyfi, vörumerki, viðskiptaleyndarmál eða önnur eignaréttindi eða rétt til kynningar eða einkalífs; (e) skulu ekki vera niðrandi, ærumeiðandi, með ólögmætum hótunum eða ógnunum; og (f) skulu ekki valda Nu Skin ábyrgð eða því að við verðum af þjónustu þeirra sem sjá okkur fyrir henni á Netinu eða frá öðrum birgjum. Sendandi allra skilaboða til þessarar vefsíðu eða á annan hátt til Nu Skin ber ábyrgð á efni og upplýsingum sem eru í þeim, þ. á m. að þær séu réttar og nákvæmar. Þessi vefsíða er látin gestum í té sem þjónusta. Nu Skin áskilur sér rétt til að eyða, breyta eða auka við efni þessarar vefsíðu hvenær sem vera skal án þess að láta neinn vita.
21. Slit
Komi til þess að einn eða fleiri hlutar samnings þessa telist af einhverjum ástæðum vera ógildir eða óframkvæmanlegir á einhvern hátt skal gildi hans, ólögmæti eða óframkvæmanleiki ekki hafa áhrif á önnur ákvæði í samningi þessum.
22. Fyrirsagnir
Fyrirsagnir í samningi þessum eru einungis til þæginda við leit en ekki skal styðjast við þær við túlkun samnings þessa.
23. Ekkert afsal
Engin seinkun eða misbrestur af þínum völdun eða Nu Skin, hvenær sem vera skal, til að æskja framkvæmd á einhverju ákvæði samningsins skal á engan hátt hafa áhrif á rétt þinn eða Nu Skin síðar til að knýja slíkt ákvæði fram. Engin seinkun eða misbrestur af þínum völdum eða Nu Skin við færa sér réttindi sín í nyt skal fela í sér afsal slíkra réttinda eða neinna réttinda í samningnum.
24. Samningurinn í heild, uppfærsla og breytingar
Samningur þessi og önnur skjöl sem beinlínis er vísað til skal skoða sem samning í heild milli Nu Skin og þín um sjálft samningsefnið. Nu Skin má eingöngu að eigin geðþótta og upp á sitt eindæmi lagfæra eða breyta samningi þessum eða öðrum tilheyrandi skjölum með tilkynningu á vefsíðunni. Allir lagfærðir eða breyttir skilmálar taka gildi við tilkynninguna. Í áframhaldandi notkun vefsíðunnar felst samþykki á breyttum skilmálum og skilyrðum. Viljirðu spyrja einhvers um samning þennan skaltu hafa samband á privacy@nuskin.com.
25. Framsal
Þú mátt ekki framselja rétt þinn eða ráðstafa ábyrgð þinni hér á eftir án greinilegs, skriflegs leyfis frá Nu Skin nema í sambandi við sölu á fyrirtæki þínu og öllum eða mestu af eignum þess. Nu Skin getur hvenær sem er krafist réttar síns í þessu máli án þess að gera þér viðvart.
26. Bótaréttur þriðja aðila
Engum sem ekki er aðili að samningi þessum er ætlað að vera bótaþegi samnings þessa og enginn sem ekki er aðili að samningi þessum skal hafa neinn rétt til að knýja fram nokkra skilmála samnings þessa.
27. Lok
Nu Skin getur umsvifalaust gefið út viðvörun, frestað eða bundið enda á aðgengi þitt að vefsíðunni fyrir brot á samningi þessum (eða öðrum samningi eða áföstu tryggingarskírteini með vísun í hann), eða okkur er ógerlegt að sannreyna eða ganga úr skugga um upplýsingar sem þú lést okkur í té, eða af einhverri annarri ástæðu að okkar geðþótta. Þú mátt loka reikningi þínum með því að hringja í okkur í síma 1-800-487-1000.
28. Stefna varðandi brot á höfundarrétti og útnefning umboðsmanns höfundarréttar
Stefna Nu Skin í tengslum við brot á höfundarrétti og útnefndur umboðsmaður Nu Skin sem veitir kröfum vegna brota á höfundarrétti í samræmi við stafrænu þúsaldar höfundarréttarlögin (17 USC § 512 móttöku eins og fram kemur hér að neðan:
TILKYNNING UM HÖFUNDARRÉTT NU SKIN
Nu Skin, tengd fyrirtæki og útibú (“Nu Skin”) virðir huglæg réttindi annarra og æskir þess að þeir sem heimsækja vefsíðu okkar að gera eins. Nu Skin getur, við viðeigandi aðstæður og að sínum geðþótta fjarlægt eða rofið aðgengi þeirra til efnis á vefsíðu sinni sem brjóta gegn höfundarrétti annarra. Nu Skin getur einnig, að geðþótta sínum, fjarlægt eða rofið tengingar eða tilvísanir til beintengdra stað þar sem brotlegt efni eða athafnir er að finna.
Ef þú telur að vinna þín hafi verið notuð á vefsíðu okkar á þann hátt að jafngildi broti á höfundarrétti skaltu tilkynna umboðsmanni Nu Skin um höfundarrétt það skriflega. Eftirtaldar upplýsingar skulu koma fram í tilkynningunni:
• Undirskrift þess sem umboð hefur til að koma fram fyrir hönd eiganda höfundarréttar sem talið er að brotinn hafi verið, bæði handskrifuð og með rafeindaauðkenni;
• Lýsing á þeirri vinnu sem nýtur höfundarréttar sem þú segir að hafi verið brotinn ásamt afriti af höfundarréttarverkinu eða sú vefsíða þar sem verkið er að finna;
• Auðkenni þess staðar á vefsíðu okkar þar sem efnið sem þú segir að hafi verið brotið gegn er að finna, eða tengingin eð tilvísun til annarrar vefsíðu þar sem efnið sem þú segir að hafi verið brotið gegn er að finna;
• Nafn þitt, heimilisfang, símanúmer og netfang;
• Yfirlýsing þín um að þú sért í góðri trú um að hin umdeilda notkun efnisins hafi ekki verið heimiluð af eiganda höfundarréttarins, umboðsmanni hans eða lögum; og
• Yfirlýsing þín, að viðlagðri refsingu fyrir meinsæri, að upplýsingarnar í þessari tilkynningu séu réttar og þú sért eigandi höfundarréttar þess efnis sem talið er að brotið hafi verið gegn eða hafir umboð til aðgerða fyrir hönd eiganda flutningsréttarins.
Umboðsmaður höfundarréttar fyrir Nu Skin og sá sem tekur við kröfum um brot á höfundarrétti á þessari vefsíðu er Hr. Larry Bianucci en til hans má ná á eftirfarandi hátt:
Með bréfi
Nu Skin International, Inc.
75 West Center Street
Provo, UT 84601
Með tölvupósti:
lrbianuc@nuskin.com
Með síma:
(801) 345-3800
Með bréfsíma:
(801) 345-3899
Höfundarréttur © 2010 Nu Skin. Öll réttindi áskilin.



